Hringlaga æfingateygjurnar frá FitCo eru afar öflugar teygjur sem að henta vel í fjölda æfinga. Teygjurnar eru afar vinsælar en það er hægt að nota þær í hefðbundnar styrktaræfingar, teygjur og margt fleira. Léttari teygjurnar tvær (rauða og svarta) eru afar nettar og eru því snilldar ferðafélagi enda gera þær þér kleift að taka æfingar fyrir alla helstu vöðvahópa.
- Gula teygjan er 7mm breið, stífleiki 2 - 7 kg
- Rauða teygjan er 15mm breið, stífleiki: 4,5 – 16kg
- Svarta teygjan er 22mm breið, stífleiki: 11 – 30kg
- Fjólubláa teygjan er 32mm breið, stífleiki: 16 – 39kg
- Græna teygjan er 45mm breið, stífleiki: 23 – 57kg