0
Hlutir Magn Verð

"SagaNatura SagaPro 60 hylki " hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

SagaNatura SagaPro 60 hylki

4.895kr
3.671kr
- +

Íslenskt frá SagaNatura - SagaPro - Notað við tíðum þvaglátum  

SagaPro er unnið úr hvannarlaufum og getur gagnast konum og körlum með ofvirka blöðru og körlum með stækkaðan blöðruhálskirtil.  Notendur SagaPro eru iðulega fólk með ofvirka blöðru og þjást af tíðum þvaglátum.  

Róar blöðruna - Betri hvíld - Dregur úr tíðni næturþvagláta - Innihald 60 hylki  

 

  • Betri kaup Í YOGI.IS ! Nú er hægt að blanda saman í einni pöntun öllum heilsuvörum frá Vivo Life, Eylíf, Feel Iceland, Key Natura / Saga Medica, Urban Veda og Steens hunangi og ná fram stigvaxandi afslætti þ.e. 5% fyrir 2 stk, 10% fyrir 3+ stk. Afsláttur kemur fram í körfu.
  • Enginn sendingarkostnaður á pöntun að verðmæti umfram kr. 7.500.-
  • ----------------------

SagaPro dregur úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd. 

SagaPro er íslensk náttúruvara og framleidd úr ætihvönn sem hefur verið ein þekktasta og mikilvægasta lækningajurtin í Norður-Evrópu í mörg hundruð ár. 

Varan er klínískt rannsökuð og hefur í gegnum árin sannað virkni sína og bætt lífsgæði fjölda einstaklinga bæði hér á landi og erlendis. 

SagaPro er unnið úr hvannarlaufum og getur gagnast konum og körlum með ofvirka blöðru og körlum með stækkaðan blöðruhálskirtil.  Notendur SagaPro eru iðulega fólk með ofvirka blöðru og þjást af tíðum þvaglátum. 

Notendur SagaPro hafa tekið 1-2 töflur fyrir svefninn til að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum að nóttu til.  Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro.  Jafnframt hafa lífstílshópar í auknum mæli verið að taka SagaPro til að fækka salernisferðum á meðan áhugamálin eru stunduð af kappi.  Þetta á við um t.d. hlaupara, golfara, hjólreiða og göngufólk. 

Notkun - Við mælum með 1-2 töflum og er einstaklingsbundið á hve stuttum tíma virknin kemur fram.  Fólk hefur sagst merkja áhrif frá allt niður í fimm daga frá upphafi notkunar. Margir finna ekki fyrir breytingu fyrr en eftir lengri tíma en fjörutíu daga skammtur á að nægja til að taka af allan vafa um hvort SagaPro gagnast eða ekki.  Rétt er að leita læknis ef um tíð þvaglát er að ræða því orsakir geta verið margvíslegar.  Þetta á sérstaklega við um karlmenn. 

1 hylki inniheldur  .... SagaPro... 100mg. 

Innihald 60 hylki - ráðlagður dagskammtur 2 perlur á dag með mat. 

Vegan vottuð vara