0
Hlutir Magn Verð

"Lífrænt hágæða MATCHA frá UJI héraði í Japan - 25 bréf " hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Lífrænt hágæða MATCHA frá UJI héraði í Japan - 25 bréf

1.999kr
- +

  • Verð frá kr. 1.799.- / 2 vörur 5% afsl.  3 vörur 10% afsl. og þú blandar vörum að vild * 
  • Lífræna Matcha teið okkar kemur frá litlum fjölskyldu búgarði í Uji héraði sem er talið eitt albesta te ræktunarsvæðið í Japan.  
  • Fylgt er ströngum aldagömlum ræktunarhefðum þar sem teblöðin eru ræktuð í skugga undir netum síðustu 3 vikur fyrir uppskeru sem eykur L-Theanine magn í blöðunum og viðheldur betur bragði og lit.   
  • Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.   
  • Matcha teið er auk L-Theanine,  ríkt af steinefnum, vítamínum og andoxunarefnum.
  • Matcha te eykur orku og brennslu,  hentar í öll not, hvort sem er heitt eða kalt.   
  • Sölueining 25 x 0.5gr instant sticks / bréf duga aö öllu jöfnu í 25 bolla af Matcha te eða latte.  

Magnafsláttur af öllum Vivo Life vörum,  Aromandise Matcha, Yerba Mate og Steens Manuka hunangi .: 2stk. 5% afsl., 3stk. 10% afsl.  og þú blandar vörum að vild til að öðlast afslátt.

 Um Matcha teið okkar .:

Matcha er búið til úr fersku hágæða grænu te sem kallast Gyokuru. 

Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.   

Matcha er stútfullt af andoxunarefnum,  minnkar þreytu,  eykur orku og jafnframt talið auka grunnbrennslu líkamans um allt að 20%  

Örlítið koffein er í Matcha sem gefur smá orkuskot sem er þó dempað af L-Theanine amminosýru sem Matcha er ríkt af ásamt fleiri amminosýrum. 

Matcha er til í mörgum gæðaflokkum sem byggir m.a. á staðsetningu, loftslagi og aðferðum við ræktun og frágang. 

Hlíðar Uji héraðs í Japan þykir henta einstaklega vel til te ræktunar þar sem er frjór jarðvegur, hreint vatn og hentugt loftslag. 

Lífræna Matcha teið okkar kemur af ökrum mjög virtra framleiðanda í Uji héraði í Japan þar sem lögð er áhersla á 100% lífræna ræktun og viðurkenndar aðferðir þar sem plönturnar eru í skugga síðustu 3 vikur fyrir uppskeru sem stuðlar að hámarks amminosýrumagni í teblöðunum m.a. af L-Théanine.  

Almennt er talað um 1, 2 og 3 uppskeru. 

Prestige Ceremonial Grade Matcha er úr fyrstu uppskeru (1st harvest )  sem skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum.  Hentar vel í Matcha viðburði og fyrir þá sem kjósa aðeins það besta.     

Premium Ceremonial Grade Matcha er einnig úr fyrstu uppskeru (1st harvest )  sem skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum.  Hentar vel í Matcha viðburði og dagleg not í hámarks gæðum.    
 

Aðrar Matcha afurðir okkar koma úr annari uppskeru ( 2nd harvest ) sem gefur þeirri fyrstu lítið eftir og fullnægir öllum kröfum um hreinleika og gæði enda kemur mest selda Matchað okkar úr annari uppskeru sem er á frábæru verði miðað við gæði.    Bragðmunur er á fyrstu og annari uppskeru og margir kjósa frekar afurðir úr annari uppskeru í þau not sem hentar þeim. 

Þriðja uppskera er almennt ódýrara og gjarnan notað í eldhús, bakstur ofl og jafnframt af framleiðendum sem leggja eingöngu áherslu á lágt verð.   

Okkar Matcha te er eingöngu úr fyrstu og annari uppskeru en hagstæð innkaup okkar gera okkur kleyft að bjóða vöruna á mjög sanngjörnu verði.   

Um samstarfaðila okkar Aromandise .: 

Aromandise er franskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í lífrænum afurðum.   Aromandise er langstærsti seljandi á Matcha í heilsuverslarnir og markaði sem sérhæfa sig í lífrænum afurðum í Frakklandi og víða um Evrópu.

Samstarf Aromandise við sömu framleiðendur í Uji, Japan hefur verið óbreytt í yfir 20 ár. 

Aromandise og Gott Líf sf / Yogi.is hafa nú tekið höndum saman um dreifingu vöru Aromandise á íslandi.   Lögð er áhersla á góða vöru og sanngjarnt vöruverð.