0
Hlutir Magn Verð

"Rope Yoga æfingabekkur með öllu" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Rope Yoga æfingabekkur með öllu

89.800kr
50.000kr
Uppselt

  • NOTAÐIR BEKKIR ÚR ROPE YOGA SETRINU Í TOPPSTANDI.   
  • Rope Yoga æfingabekkur með böndum. 
  • Rafrænn 38 blaðsíðna æfingabæklingur með Rope Yoga - og teygjuæfingum fylgir með á prentanlegu PDF formi   

  • Rope Yoga / Gló Motion æfingarnar þróaðar af Guðna Gunnarssyni hafa fyrir löngu sannað ágæti sitt sem frábærar alhliða æfingar byggðar á yoga fræðunum þar sem lögð er áhersla á rétta líkamsstöðu út frá kvið , djúpa öndun , kyrrð og núvitund.     
  • Rope Yoga æfingar styrkja og móta allan líkamann með sérstaka áherslu á kvið,  mjaðmir, læri, axlir og handleggi.   
  • Þar sem Rope Yoga líkamsæfingarnar eru framkvæmdar mjög rólega fer saman upphitun og styrking, byrjað á æfingum með áherslu á efri hluta líkamans og síðan seinni hluti æfingakerfis fyrir fótleggi  ( eða eftir vali hvers og eins )   Að æfingum loknum er gott að framkvæma valdar teygjuæfingar á bekknum með aðstoð Rope Yoga bandanna.   
  • Fyrir þá sem aðhyllast og þekkja jógafræðin er mjög gott af hefja æfingu með skönnun líkamans eða hugleiðslu og enda æfingu með slökun / hugleiðslu í nokkrar mínútur. 
  • Mikilvægt að huga að réttri öndun samhliða æfingum.     
  • Stærð bekkjar. :
  • Mesta Breidd  0.75 m.:  Mesta lengd í notkun 2.25 m.;  Lengd með dýna brotin saman 1.35 m.;  Lengd með dýna brotin saman og gálgi tekinn af 1 m. 
  • Lengd æfingakerfis er í raun undir hverjum og einum komið en tilvalið að gera valdar grunnæfingar á 10-15 mínútum en eðlilegt ef farið er yfir allt ferlið að 30-50 mínútur sé nær lagi.