0
Hlutir Magn Verð

Urban Veda Náttúrulegar snyrtivörur

Urban Veda er margverðlaunuð náttúruleg snyrtivörulína innblásin af lögmálum Ayurveda.   

Framleidd í Bretlandi eftir viðurkenndum Vegeterian stöðlum algjörlega laus við umdeild efni eins og Paraben , ólífræn litarefni , Sodium Lauryl Sulfate  , Mineral olíu og stökkbreytt efnasambönd (GM).  

Urban Veda prófar ekki framleiðsluvöru sína á dýrum.  

Daglega erum við að kljást við margháttaða umhverfisþætti sem hafa neiðkvæð áhrif á heilbrigði húðar okkar.    Lífstíll okkar endurspeglast oft í útliti húðarinnar.   

Urban Veda húðlínan er framleidd með þessa þætti í huga og eingöngu notast við nátturuleg innihaldsefni og lögmál Ayurveda fræðinnar höfð að leiðarljósi þegar leitast er við að upphefja umhverfisþætti 21st aldarinnar og viðhalda heilbrigði húðarinnar. 

Okkar sýn er að  hin fornu Ayurveda fræði passi vel inní lífstíl 21st aldarinnar en ólíkt mörgum loforðaglöðum lausnum á okkar tímum þá byggja  Ayurveda fræðin mun frekar á langtíma lífstílslausnum.    

Með náttúrulegri framleiðslu og notkun á eingöngu úrvals hráefnum úr Ayurveda fræðunum , jurtum , blómum , ávöxtum blönduðum vitaminum og viðurkenndum efnum , hjálpa Urban Veda vörurnar húðinni að viðhalda heilbrigði húðarinnar með því að næra hana af Omega ríkum olíum ,  andoxunarefnum og nauðsynlegum fitusýrum. 

Urban Veda línurnar eru þróaðar með það í huga að henta mismunandi húðgerðum byggt á Ayurveda fræðunum og í tengslum við þitt “dosha”   Það er greining Ayurveda fræðanna á líkamlegri og andlegri stöðu okkar.   

Ayurveda heilsu og lífstílsfræðin eru byggð á 5000 ára þekkingarþróun í Himalaya fjöllunum þar sem notast er við jurtir sem eru ríkar af vítamínum , andoxunarefnum , nauðsynlegum fitusýrum og styrkjandi plöntuefnum.  

Urban Veda línurnar hjálpa við að setja umhverfisþætti í jafnvægi með því að hreinsa  (purify ) , mýkja  (sooth ) , endurnýja ( revive ) og kalla fram ferskleika ( add radiance ) 

Við trúum á verðmæti náttúrinnar og leitum því eftir nátturulegum , ferskum og hreinum innihaldsefnum í allar okkar  framleiðsluvörur í þeirri viðleitni að viðhalda heilbrigði þeirra. 

 

Nýjustu blogfærslurnar